Velkomin til Fjalldrapa

Sigríður heiti ég og bý í Reykjavík. Kisurnar mínar eru mitt áhugamál númer 1.

Fjalldrapa Fantacia Lilac Lust

lilla bröndu gríma.

Ég hef átt Kisur í mörg ár en draumurinn var alltaf að eignast persa. Ég fór á sýningu hjá Kynjaköttum vorið 2002 og sá þá colorpoint kisur í fyrsta skiptið og féll alveg fyrir þeim. Þá keypti ég Bláskjás Deplu Jasmín.

Nú var sko ekki aftur snúið, ég var alveg yfir mig hrifin af henni. Þessari skapgerð hafði ég bara aldrei kynnst fyrr. Ég fékk mér svo annan og annan og las allt það sem ég gat fundið um þessa tegund, ég hef lært alveg helling en eins og aðrir byrjendur er ég alltaf að læra eitthvað nýtt á hverjum degi.

Í október 2003 flutti ég inn fress frá Hollandi, frá kattarækt sem heitir The Happy sisters.  Hann heitir Kyoto Bao Quin en er kallaður Pim. Hann er alþjóðlegur meistari frá CFA.  Við fluttum svo inn læðu í  desember 2004 og kemur hún frá sama ræktanda. Ekki hætti ég þarna því ég flutti svo inn annan fress í byrjun árs 2005 og hann kemur frá kattaræktun sem heitir Mariposas. Hann heitir Mariposas Lines Deleted, og svo læðu frá sama ræktanda Mariposas Candy Line í lok ársins 2005. Enn kom nýr fress og í þetta sinn frá Englandi frá Rosegarth ræktuninni hann heitir Rosegarth Sugar Bear en hann flutti ég inn núna í janúar 2007 í samstarfi við Stefaníu en hún er að fara að rækta colorpoint líka, þannig að við eigum hann saman.

Ég á þessum tveim ræktendum, Coby og Marie  mikið að þakka, fyrir að hafa treyst mér fyrir þessum æðislegu kisum, einnig fyrir að vera alltaf til staðar með góð ráð fyrir mig þegar að ég á þarf að halda. Einnig hefur Guðrún Helga hjá Bláskjás ræktun staðið vel við bakið á mér og hefur deilt með mér sinni reynslu og þekkingu.

Megin markmið okkar er að rækta heilbrigða , hamingjusama og mannelska ketti. Kisurnar okkar eru ekki hafðar í búrum. Þær fá úrvals þurrfóður frá Royal Canin. Við notum eingöngu snyrtivörur frá Bio Groom. Við erum meðlimir í Kynjaköttum sem eru svo aðildarfélag í Fife.

Búið er að testa allar kisurnar okkar fyrir PKD sem er arfgengur nýrnarsjúkdómur,og með ánægju get ég sagt að  öll ræktunardýrin okkar eru neikvæð fyrir sjúkdómnum.  uppl. um sjúkdóminn á íslensku finnast HÉR.  

 

Fyrir mig skipta kattasýningarnar miklu máli bæði til að safna stigum á kisurnar og ekki síst til að hitta aðra ræktendur. Við erum einungis með 4 sýningar á ári svo það getur tekið okkur mjög langan tíma að ná meistara stigum.

Við höfum einnig hafið ræktun á Maine coon og erum við með sér síðu fyrir það, endilega kíkið við og ekki gleyma að kvitta í gestabókina

Við þökkum fyrir komuna  og endilega skrifið í gestabókin áður en þið farið.

 

viltu vera á póstlista og fá uppl. þegar síðan er uppfærð?
skráðu þá email adressu og nafn hér fyrir neðan:
Nafn:
Email:
Subscribe  Unsubscribe 

 

 

 

Image©Patti Jo